Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 629, 149. löggjafarþing 179. mál: útflutningur hrossa (gjald í stofnverndarsjóð).
Lög nr. 124 18. desember 2018.
Þingskjal 629, 149. löggjafarþing 179. mál: útflutningur hrossa (gjald í stofnverndarsjóð).
Lög nr. 124 18. desember 2018.
Lög um breytingu á lögum um útflutning hrossa, nr. 27/2011, með síðari breytingum (gjald í stofnverndarsjóð).
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 6. gr. laganna:- Í stað „1.500 kr.“ í 1. málsl. kemur: 3.500 kr.
- Í stað „Bændasamtök Íslands“ í 2. málsl. kemur: Innheimtumaður ríkissjóðs.
2. gr.
Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 2019.Samþykkt á Alþingi 7. desember 2018.